Bókmenntahátíðin í Reykjavík 2009
Bókmenntahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta skipti 1985 og er einn af helstu viðburðum íslenska bókmenntasamfélagsins. Hátíðin er að jafnaði haldin annað hvert ár og er hátíðin þetta árið sú níunda í röðinni. Helstu viðburðir hátíðarinnar fara fram í Norræna húsinu og Iðnó.
Hátíðin er sem fyrr skipulögð af hópi sjálfboðaliða. Í stjórn hátíðarinnar eru Sigurður G. Valgeirsson (formaður), Einar Kárason, Halldór Guðmundsson, Max Dager, Óttarr Proppé, Pétur Már Ólafsson, Sjón, Thor Vilhjálmsson, Þorgerður Agla Magnúsdóttir og Örnólfur Thorsson. Starfsmenn hátíðarinnar eru Hjalti Snær Ægisson, Kristín Ingvarsdóttir og Stella Soffía Jóhannesdóttir.
Á bókmenntahátíð í Reykjavík koma innlendir og erlendir rithöfundar saman, kynna verk sín og ræða um líf sitt og störf. Nálægð við lesendur er aðalsmerki hátíðarinnar, en atburðir hátíðarinnar eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis.

Íslenska
English
Dansk
Deutsch